
Almennt bókhald
Dagleg bókun reikninga, skil á virðisaukaskatti, afstemmingar á bankareikningum, lánardrottnum og viðskiptamönnum.

Launavinnsla
Útreikningur launa. Gerð launaseðla, bankaskilagreina og skilagreina til skattayfirvalda, lífeyrissjóða, stéttarfélaga og annarra.

Greiðsla & útgáfa reikninga
Við sjáum um greiðslu og útgáfu reikninga. Reikningar eru sendir rafrænt og kröfur stofnaðar í netbanka.

Ársreikningar
Við gerum ársreikninga og skattframtöl lögaðila. Einnig skattframtöl einstaklinga með eða án reksturs.

Gerð skattframtals
Við önnumst gerð skattframtala fyrir einstaklinga, bæði með og án reksturs

Rekstrarráðgjöf
Við veitum rekstrarráðgjöf er varðar fjármál fyrirtækja og skipulag bókhaldsmála.
Hvað getum við gert fyrir þig?

Stofnun félaga
& fyrirtækja
Við stofnum félög og skráum á vsk- og launagreiðendaskrá þar sem við á.

Innleiðing
bókhaldskerfa
Við bjóðum upp á ráðgjöf og aðstoð við innleiðingu bókhalds- og sölukerfa.

Samskipti
við opinbera aðila
Við önnumst kærur og samskipti við skattayfirvöld þegar þörf er á vegna skattamála.
Við erum 3 SKREF
Ingibjörg er viðskiptafræðingur með víðþekka reynslu af rekstri, fjármálum, áætlanagerð og stjórnun fyrirtækja og stofnanna.